triple-G´s home away from home

triple-G

20.11.2006 22:10:33 / triple-G

Frétt ársins

af mbl.is í dag:

"Íslendingar sluppu með skrekkinn í Baltimore"

"Hópur Íslendinga slapp með skrekkinn sl. laugardag en fólkið var nýbúnið að yfirgefa veitingasal í verslunarmiðstöð í Baltimore í Bandaríkjunum þar sem til skotbardaga kom stuttu síðar." - enn ein fréttin sem skiptir engu máli um íslendinga erlendis...

"Móðir eins Íslendingsins sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að skotárásin hafi átt sér stað um 20 mínútum eftir að hópurinn hafði yfirgefið verslunarmiðstöðina Westfield Annapolis og farið inn á hótelið sitt, sem er beint á móti. Þá segir hún að Íslendingarnir hafi mætt árásarmönnunum á leið sinni út úr verslunarmiðstöðinni." - noooh, þeir mættu árásarmönnunum á leið sinni út úr verslunarmiðstöðinni. Þvílík lífshætta sem okkar menn hafa verið í..... Þrátt fyrir að hafa verið á hótelinu sínu þegar atvikið átti sér stað!

"Fram kemur í Baltimore Sun að hópur ungmenna hafi ráðist á ungan mann um sjöleytið á laugardagskvöld við inngang veitingasalarins þar sem Íslendingarnir höfðu verið." - Stóð s.s. í Baltimore Sun að skotárás hafi átt sér stað þar sem íslendingar voru að borða 20 mínútum áður?

"Íslendingarnir eru væntanlegir til landsins á morgun" - hjúkkitt!! lífið getur haldið áfram....vonandi mun ekkert gerast á flugvellinum sem þeir fljúga frá. Kannski að það verði gerð vopnaleit á einhverjum 90 mínútum eftir að flugvél Icelandair fari frá Baltimore, þá finnst mér vera komið tilefni til að skrifa frétt......


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 12:58:53 / triple-G

Schnilld


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 07:21:15 / triple-G

Hamingjuóskir

Ég vil nota þetta tækifæri og óska Braga og spúsu hans innilega til hamingju með frumburðinn. María litla kom í heiminn á aðfaranótt laugardags (held að það sé rétt hjá mér) og heilsast móður og barni vel. Ekki er vitað með heilsu föðursins en mikil hætta er á heilsubrestum þar sem hann er gríðarlega gamall. En til hamingju Bragi og Eygló, gangi ykkur sem allra best.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 14:49:58 / triple-G

Hvað er í gangi hér???

Yndisleg mynd af samnemendum mínum í HR á sínum tíma.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 22:15:10 / triple-G

Scorpions rúla



» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 23:08:27 / triple-G

Svona la la

Mínir menn í Gautaborg hafa ekki farið nógu vel af stað í Allsvenskan. Eftir 12 leiki erum við staddir í 6. sæti með 19 stig og markatöluna 17:10. Hammarby eru efstir með 26 stig. Reyndar eigum við leik inni þannig að gætum farið upp í 3-4 sæti með sigri í þeim leik. Menn eins og Hjálmar Jónsson, Gustav Svensson og Tomas Jonsson eru leikmenn sem ég og aðrir Gautaborgarar leggjum traust okkar á og ætlumst við til að liðið spili í Meistaradeild Evrópu að ári. Ég hvet alla til að fylgjast með Allsvenskan í vetur. Gautaborg er liðið!

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 00:52:02 / triple-G

Osló og USA

jæja, nú er triple-G á leiðinni í sumarfrí og ekki byrjar fríið illa. Haldið verður til Osló í tvo daga þar sem mjöðurinn verður drukkinn ásamt félögunum. Þaðan verður svo haldið á ráðstefnu í USA þar sem Agile verður skeggrætt meðal fjöldanum öllum af tölvunörðum.
Ekki slæm byrjun á fríinu. Ég spái því að ég eigi eftir að fá mér 1-2 bjóra á næstu 10 dögum.

Ég segi bara Heja Norge og Howdy America

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 00:53:40 / triple-G

Hamingjuóskir

Langar til að óska Eyjamönnum til hamingju vegna
goslokahátíðarinnar sem var síðustu helgi. En í ár eru 25 ár síðan að allt Coke kláraðist í Eyjum og því ber að sjálfsögðu að fagna. Til hamingju Eyjamenn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 16:46:39 / triple-G

Blogg í tilefni gærdagsins


Já, maður er ekki alveg dauður úr öllum æðum. Ég verð nú að splæsa í blogg í tilefni þess að mínir menn, Ítalir urðu heimsmeistarar í knattspyrnu í fjórða skiptið í sögunni. Þessu hef ég haldið fram í rúman mánuð og menn hafa hlegið og sagt að Ítalir séu leiðinlegir og ég veit ekki hvað og hvað. En þeir komu og spiluðu bara fínan bolta í keppninni. Það sýndi sig enn einu sinni hvað það skiptir miklu máli að vinna riðilinn og fá "léttari" andstæðinga í útsláttarkeppninni. Mætti segja að Þjóðverjarnir hafi verið erfiðastir áður en kom að Frökkunum og að sjálfsögðu voru nasistarnir teknir og bakaðir þar sem goðið sjálft Del Piero tryggði sigurinn. En úrslitaleikurinn snérist náttúrulega upp í sirkus þegar "snillingurinn" zidane eða sköllótti brjálæðingurinn eins og ég kýs að kalla hann gersamlega tapaði sér og datt í nautaat við góðvin minn Marco Materazzi. Ekki í fyrsta skipti sem hann gersamlega tapar sér kallinn, leiðinlegur endir á mögnuðum ferli.

En það skiptir engu máli. Ítalía er heimsmeistari og í tilefni þess mun ég blása lífi í bloggið mitt.

E stanno tutti bene, multo bella seniorita pepperoni spaghetti, kapísh?



» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 15:13:31 / triple-G

Chuck Norris fact of the day 2

 Chuck Norris will eat Mike Tysons' babies                                


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 10:42:38 / triple-G

Chuck Norris fact of the day!

One drop of Chuck Norris' sweat can cure you of anything, even death.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 16:43:08 / triple-G

Brokeback mountain, Arrested development, My name is Earl og 24

Fyrir fáeinum dögum síðan ákvað ég að horfa á Brokeback mountain ásamt spúsu minni. Myndin hefur fengið mjög góðar viðtökur og eru menn að tala um að Óskar frændi kíki í heimsókn fljótlega.

Eftir að hafa horft á myndina í um 45 mínútur þá var ákveðið að hætta, það gerist voða lítið í henni. Það markverðasta var kannski þegar kúreki #1 ákveður að taka kúreka #2 í ósmurt rass"#$"# og það atriði vakti óhug meðal áhorfenda. Vel leikið hjá þeim félögum en mikið rosalega hlýtur að hafa verið erfitt að taka þetta atriði upp. Mér líður bara illa þegar ég sé tvo karlmenn labba hlið við hlið á laugaveginum þannig að þetta var of mikið fyrir mig.

Annars er nauðsynlegt fyrir fólk að komast yfir þætti sem heita Arrested development. Þessir þættir eru án þeir allra skemmtilegustu sem boðið er uppá í dag. Magnaðir karakterar og yndislegur húmor. Mæli eindregið með þessum þáttum.

Svo er það náttúrlega My name is earl, úff, þvílík snilld, tala nú ekki um nýju seríuna af 24, hún er svakaleg.

Horfi ég of mikið á sjónvarp??? neibb!

triple-G


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:52:36 / triple-G

Rannsókn

Eftir langa yfirlegu og mikil fundarhöld er þetta niðurstaðan:

I´m a lover, not a fighter!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Frændi minn